Íslenska Hollywood!!!
- May 4
- 1 min read

Þetta er geggjuð byrjun á þætti að kalla Reykjanesbær Hollywood Íslands en Filo sagði það í upphafinu að þessum þætti. Gugga var að spurja sig hvort að þetta væri Hollywood Íslands en fattaði það svo þegar er keyrt reykjanesbrautina þá sérðu Reykjanesbær í Hollywood stöfum. Hér kemur þátturinn með: Filo og Gugga í boltanum: Innsýn í þjálfara lífið og harðar æfingar í Njarðvík. Njótið vel meðan þær heimsækja okkar karlalið í Njarðvík í IceMar höllina 🏀😀
Í nýjasta þætti Filo og Gugga í boltanum skella vinkonurnar sér til Njarðvíkur þar sem þær fá einstaka innsýn í starf körfuboltaþjálfarans. Rúnar Ingi þjálfari opnar sig um hvernig vinnan fer fram á bak við tjöldin og ræðir þann áhugaverða mun sem fylgir því að stýra meistaraflokki karla annars vegar og kvenna hins vegar.
Heimsóknin var þó ekki án léttvægra stimpinga, enda eru tveir fyrrum Keflvíkingar nú í liði Njarðvíkur. Þeir fengu að heyra það frá stúlkunum fyrir að hafa ekki valið græna búninginn strax í upphafi, sem vakti mikla kátínu og skilaði skemmtilegum skotum á milli manna.
Að lokum var komið að líkamlegu átaki þegar Filo og Gugga mættu strákunum í hressilegri styrktaræfingu. Þær létu ekki sitt eftir liggja og fóru í beina samkeppni við leikmennina í lyftingum og upphífingum, þar sem keppnisskapið fékk svo sannarlega að njóta sín.
Frétt tekin af karfan.is
Tekið er fram að þátturinn er tekinn áður en Njarðvík fór út úr úrslitakeppni Bónus deildar karla




Comments